Skjólfesta léttir undir við fasteignakaup

Skjólfesta er sjóður í eigu Croci ehf. sem er systurfélag Varmárbyggðar en í vörslu sjóðstýringarfélagsins Stefnis. Stefna sjóðsins er að létta fasteignakaupendum undir við kaup á nýrri íbúð úr fasteignaverkefnum Varmárbyggðar.

Skjólfesta býður upp á sveigjanlegt fyrirkomulag sem hentar jafnt fyrstu kaupendum ásamt þeim sem annaðhvort eru að stækka eða minnka við sig. Aðkoma sjóðsins að fasteignakaupunum leiðir til þess taka þarf lægra húsnæðislán.

EIGNIR

Skjólfesta hentar fyrir alla

Framlag sjóðsins getur numið allt að 20% af kaupverði fasteignarinnar. Sjóðurinn er rekinn af sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni og þjónustuaðili við kaupendur er í höndum Aparta.

Tilgangur sjóðsins er að fjárfesta með kaupendum í íbúðarhúsnæði í því augnamiði að létta með þeim undir við íbúðakaup. Kaupandinn þarf að leggja til að lágmarki 10% af kaupverði eignarinnar og tekur svo allt að 70% lán hjá lánastofnun. Skjólfesta verður meðeigandi í húsnæðinu en kaupandi leigir eignarhluta sjóðsins.  Kaupandi greiðir leigu eignarhluta Skjólfestu (Sjá nánar undir Leigu).  Leigan er verðtryggð.  Umráðaréttur yfir eigninni er 100% kaupandans. Samningstíminn er allt að 10 ár.

Spurt og svarað

Skjólfestu eignir

Hafa samband